Skemmtilegt!tóm vitleysa

Í gær tók ég daginn snemma og naut þess að fara í bæinn sem iðaði allur af lífi. Sat m.a. á einu þessara gangstéttar - veitingahúsa við Laugaveginn og fylgdist með mannfjöldanum sem streymdi hjá. Veit ekki hvaðan allt þetta fólk kom en það var augljóst að tilgangurinn var einn og hinn sami hjá flestum ef ekki öllum, að njóta dagsins og þess sem boðið var upp á. Ég skemmti mér konunglega og aldrei fyrr hef ég t.d. séð jafn margt fólk í gjafumbúðum.., vantaði ekkert nema slaufurnar og borðana! Þar var sum sé á ferðinni fólkið sem þreytt hafði eitthvert hlaupið fyrr um morguninn og hafði sveipað sig einhversskonar einangrunar álþynnu að því loknu. Það var bæði skrautleg og skemmtileg sjón.
Viðburðir sem þessir gefa lífinu lit og ég geri það að tillögu minni að borgarbúar taki sig saman einhvern daginn næsta sumar og stofni til hattadags, þar sem allir mæta í bæinn með heimagerð höfuðföt eða hatta, því skrýtnari og skrautlegri, því skemmtilegra. Þá væri nú fyrst hægt að taka ofan, í orðsins fyllstu merkingu.

Leyndarmáliðtóm vitleysa

Mér líður vel.., af því að ég hef ákveðið að svo skuli vera, það er nú ekki flóknara en það. Nefni þetta nú aðeins vegna þess að ég var að lesa metsölubókina "Leyndarmálið" og uppgötvaði að allt sem í þeirri bók stendur og mælt er með að maður geri, er það sem ég hef tileinkað mér í lífinu - og ég vissi ekki að það væri leyndarmál! Mér finnst þetta nú eiginlega alveg stórkostlega fyndið. Ég hef nefnilega aldrei neinar efasemdir um að það komi til mín sem ég þarfnast hverju sinni, en vissulega legg ég mitt af mörkum til að svo megi verða og er alltaf meðvituð um að missa ekki sjónar á markmiðum mínum. Þannig vinnst allt sem ég stefni að og ég geng í öll verkefni með jákvæðum huga. Ég hef enga þörf fyrir að gera mér lífið erfitt eða flókið því ég trúi alltaf á eigin getu til að ráða fram úr öllu sem ég fæst við. Svo einfalt er það.
Þess vegna líður mér vel. 

eitt og annaðtóm vitleysa

Ég er sennilega með lélegri bloggurum landsins, en það er ekki þar með sagt að ég sé að lofa að gera betur. Af og til opna ég síðuna mína og hugsa hmm.., langt síðan síðast og svo margt sem hefur gerst á þeim tíma að ég má bara ekki vera að því að tjá mig um það, svo loka ég síðunni aftur og ákveð að gera það við betra tækifæri. Ég er enn og aftur búin að fara til Köben og víðar, fékk síðasta sætið með flugi úr landi fyrir verslunarmannahelgina og fór nánast án nokkurs fyrirvara. Og svo var það Gay Pride.., ekkert nema hamingja náttúrulega! Langt síðan ég hef skemmt mér eins vel og þá, og það er ekkert lát á, Menningarnótt framundan þannig að ég hef nóg fyrir stafni. hmm.., Gleðin er og gamanið er gott en vinnan göfgar manninn, svo ég er á leiðinni út í daginn.  

vinnan og sportiðtóm vitleysa

Nú er ég búin að vera í botnlausri vinnu og sér enn ekki fyrir endann á. Dagarnir hafa verið langir og á stundum kaotískir, ekki síst þegar óvæntar breytingar setja skipulagið  í loft upp. En auðvitað leysi ég svo sem allt sem ég stend frammi fyrir!
Og svo er það golfið - ég dró fram settið og fór að spila aftur, svo það er von að maður sé þreyttur, því þetta sport er ekkert nema vinna.., en engu að síður er bakið fínt og lundin létt og það styttist í frí hjá mér. Nú ætla ég út aftur um miðjan ágúst, hvíla mig eftir vinnutörnina og safna kröftum fyrir veturinn. En eins og alltaf er frídagur á morgun svo ég hlakka bara til að skreppa út fyrir grindahliðið og taka einn hring eða svo.

öss..,tóm vitleysa

Eins og það er nú gaman að sinna áhugamálunum þegar færi gefst og renna fyrir fisk, þá hafði ég ekki séð afleiðingarnar fyrir.., í gærmorgun komst ég nefnilega varla fram úr rúminu vegna bakverkja. Það er sérstök kúnst að kasta flugu svo vel sé og fyrir vikið kemur ákveðinn snúningur á kroppinn sem virkjaði vöðva sem höfðu ekki verið í notkun mjög lengi. Almennt er ég bara ekkert að vinda mjög mikið upp á mig í daglega lífinu. Svo.., í gær var ég stirð og stíf og þver í öllum skrokknum, og allar hreyfingar eins og í mynd sem sýnd er hægt. Ég gat ekki um annað hugsað en að komast sem fyrst í þetta rándýra rúm sem ég keypti.., sérstaklega hannað fyrir fólk sem á við eymsli í baki að stríða. Það munaði minnstu að ég skilaði því nokkrum vikum eftir kaupin, því mér gekk svo illa að venjast því, en það kom nú að lokum. Og viti menn! Í dag er ég mun betri og hreyfi mig ekki lengur eins og gamall tréhestur. Kannski ég taki golfsettið fram og fari að sveifla kylfunum aftur því sennilega á sú hreyfing betur við mig en sveiflan með stöngina. Í dag hef ég hinsvegar ákveðið að vera til friðs og láta áhugamálin eiga sig!

og aftur og enn..,tóm vitleysa

Nú er maður alveg að gera sig á síðunni! Ekki nema rétt rúm vika síðan ég kom við hér við síðast og nú er ég mætt aftur.  Það er á mörkunum að ég tolli í vinnu þessa dagana vegna veðurs þó ég sinni því sem þurfi, annars er ég að skjótast í vötnin í nágrenninu og æfa nokkur köst - eða þannig. Það er náttúrulega engan fisk að fá en það skemmir ekki stemmninguna sem felst í því að reyna að lokka hann. Minn tími kemur í þessu eins og öðru. Ég er orðin svo asssskoti lunkin með fluguna!
Minnsti maðurinn í fjölskyldunni varð 1.árs í gær og ég hefði gjarnan viljað vera í afmælinu hans, en ég get ekki alveg verið í Köben í hverjum mánuði. Það er samt von á mér þangað fljótlega.., það er loforð. Ég er þegar farin að leggja drög að ferð í ágúst. Á meðan að krakkarnir kvarta ekki yfir að vera alltaf með kellinguna á herðunum.., þá mæti ég galvösk á staðinn.  

Still alive & kicking..,tóm vitleysa

Nú er mál að linni, enda hléið orðið ansi hreint langt. Dagarnir fara einhvern veginn á ógnarhraða í safnið og mér finnst sólarhringurinn aldrei nægilega langur.En hvað er að frétta? Jú, ég er búin að fara í tvígang til Kaupmannahafnar og Svíþjóðar þetta vorið til að líta á ungviðið og önnur skyldmenni, og líka til að leika mér.., en ekki hvað? Svo kom dóttir mín hingað heim með litla manninn sinn, sem var reyndar alveg skelfilega veikur nær allan tímann og var hluta af ferðinni á spítala vegna þess, en hann er sterkur eins og hann á kyn til sá stutti og búinn að ná heilsu á ný. Hann fór heim með mömmu, en er kominn aftur, og nú með pabba sínum til að vera viðstaddur brúðkaup afa síns.
Ég er náttúrulega að vinna alla daga nema laugardaga eins og verið hefur, og á ekki möguleika á að taka mér mikið lengra frí á þessum árstíma, en hlakka til að slaka aðeins á í haust. Er þó að hugsa um að bregða mér þennan daginn upp á Akranes og líta á "Írska daga" Hef alltaf verið veik fyrir írskri tónlist og steppdansi, sem og ýmsu öðru þaðan runnið.
Veit að það er regnsvæði einhversstaðar í grenndinni, en ég vona að hann hangi þurr þar sem ég á leið um.

afsakið hlé..,tóm vitleysa

Þetta er allt að komatóm vitleysa

er maður bara þreyttur.., annars er þetta alveg að verða komið hjá mér, svo ég er á lokasprettinum, tveir dagar enn og svo er það sólin og hvíldin og svefninn og allt það sem tilheyrir góðu fríi. Er búin að vinna heilmikla bókhaldsvinnu en á enn eftir skilagreinar og samninga. Veit ekki hvort ég næ því í tíma, en ég mun reyna., Búin að lána húsið á meðan ég verð í burtu - finnst það fínt því þó ég sé með öflugt kerfi hér heima við, þá er notalegt að vita af fólki á staðnum. 
Ég ætla að hitta hann bróður minn í fríinu, sem ég sé að commenterar á síðuna mína á einhverju óskiljanlegu tungumáli (hefur búið ALLTOF lengi í Svíþjóð) því skrifleg samskipti okkar á milli, kalla á aðstoð þýðanda. Annars er ég komin með fína aðstoð í því máli, og búin að fá upplýsingar um hvað litli bróðir minn er að fara í sinum skrifum.  Mun færa honum lakkrís ef hann skiptir um skoðun og hvetur mig til dáða, í stað þess að draga úr mér - annars verður lakkrísinn eftir í Köben. Svalur

helgintóm vitleysa

Páskaegg, harðfiskur, lakkrís og lýsi er meðal þess sem er á óskalista krakkanna sem fluttu til Köben fyrir skömmu, og ég er að vinna í að safna þessu saman og var rétt í þessu að koma úr einum innkaupaleiðangrinum. Síðan þarf ég að verða mér úti um ferðatösku, því þau fóru með mínar en ég hef nú hugsað mér að koma þeim heim aftur. Annars er dagskráin um helgina bundin við bókhaldsvinnu og vsk-skýrslur því það eru bara örfáir dagar þar til ég fer utan.
Hinn hefðbundni laugardags pönnukökubakstur hvarf með krökkunum, og ferðirnar í Kolaportið sem var líka fastur liður á laugardögum, hafa dottið upp fyrir. En það gladdi mitt gamla hjarta að skjótast þangað áðan eftir harðfiski og öðru smálegu.
Í allt annað, er alvarlega að hugsa um að taka áskorun vinkonu minnar um að læra á mótorhjól og krúsa um landið þvert og endilangt þegar ég er búin að ná tökum á því. Það er sama hvað ég eldist, ég vex ekki upp úr svona dellumálum.., enda finnst mér ekki nokkur ástæða til þess. 

Auglýsing